26.11.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Balde fór meiddur af velli - „Erfitt fyrir Jesus"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Vinstri bakvörðurinn eftirsótti Alejandro Balde fékk sjaldgæft tækifæri í byrjunarliði Barcelona í þægilegum sigri gegn Sabah Baku í Meistaradeildinni á dögunum.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Þægilegt fyrir Barcelona í Aserbaísjan
Balde stóð sig mjög vel og gaf eina stoðsendingu áður en honum var skipt af velli vegna meiðsla.
Balde, sem lagði þriðja mark upp leiksins fyrir Karim Adeyemi eftir að hafa verið líflegur sóknarlega og traustur varnarlega, fór út af vegna meiðsla á 64. mínútu.
Hansi Flick þjálfari Barca hefur staðfest að um ökklameiðsli sé að ræða. Balde hefur verið orðaður við Manchester United og PSG meðal annars, en hann á aðeins eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Spánarmeistarana.
„Þetta eru ökklameiðsli en við vitum ekki hversu alvarleg þau eru. Það er ekki auðvelt fyrir hann að koma inn í byrjunarliðið eftir að hafa fengið svona lítinn spiltíma en hann stóð sig mjög vel í dag," sagði Flick eftir sigurinn og ræddi einnig um þá miklu breidd sem hann hefur í sóknarlínunni.
Gabriel Jesus og Karim Adeyemi fengu tækifæri í byrjunarliðinu og komust báðir á blað í sigrinum ásamt Anthony Gordon sem skoraði tvö.
„Þetta er heldur ekki auðvelt fyrir Gabriel Jesus sem er á eftir Raphinha (í goggunarröðinni). Raphinha er svo mikilvægur fyrir okkur og það er (Anthony) Gordon líka, sérstaklega í pressunni.
„Það er ekki auðvelt að berjast við leikmann eins og Raphinha um sæti í byrjunarliðinu. Þegar hann (Gabriel Jesus) kom hingað sagði ég við hann að ég gæti ekki lofað miklum spiltíma og hann svaraði að það væri allt í lagi, hann hafi komi hingað til að hjálpa liðinu."

Meistaradeildin
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Real Madrid | 5 | +10 | 15 |
| 2 | PSG | 5 | +15 | 13 |
| 3 | Como | 5 | +14 | 12 |
| 4 | Barcelona | 5 | +11 | 12 |
| 5 | Liverpool | 5 | +7 | 12 |
| 6 | Betis | 5 | +4 | 12 |
| 7 | Arsenal | 5 | +5 | 11 |
| 8 | Man City | 5 | +5 | 10 |
| 9 | Sporting | 5 | +4 | 10 |
| 10 | Dortmund | 5 | +2 | 10 |
| 11 | Aston Villa | 5 | +5 | 9 |
| 12 | Inter | 5 | +4 | 9 |
| 13 | Club Brugge | 5 | +1 | 9 |
| 14 | Galatasaray | 5 | 0 | 9 |
| 15 | Bayern | 5 | +6 | 8 |
| 16 | Fenerbahce | 5 | -4 | 8 |
| 17 | Stuttgart | 5 | +1 | 7 |
| 18 | Atletico Madrid | 5 | +1 | 7 |
| 19 | Man Utd | 5 | 0 | 7 |
| 20 | Bodö/Glimt | 5 | -4 | 7 |
| 21 | LASK Linz | 5 | 0 | 6 |
| 22 | Porto | 5 | 0 | 6 |
| 23 | RB Leipzig | 5 | -4 | 6 |
| 24 | Villarreal | 5 | -5 | 6 |
| 25 | Roma | 5 | +2 | 5 |
| 26 | Shakhtar D | 5 | -1 | 4 |
| 27 | Viking FK | 5 | -3 | 4 |
| 28 | Napoli | 5 | -5 | 4 |
| 29 | Lille | 5 | -5 | 4 |
| 30 | PSV | 5 | -5 | 4 |
| 31 | AEK | 5 | -7 | 3 |
| 32 | Feyenoord | 5 | -8 | 3 |
| 33 | Sabah FK | 5 | -9 | 3 |
| 34 | Lens | 5 | -14 | 3 |
| 35 | Slavia Prag | 5 | -5 | 1 |
| 36 | Slovan | 5 | -18 | 0 |