26.11.26 - 21:17
Elvar Geir Magnússon
Líst illa á að bíða eftir ráðningu á Frey - „Glórulaust“

Frá heimavelli Swansea.

Mynd: EPA

Freyr Alexandersson.

Mynd: EPA

Frá heimavelli Swansea.

Mynd: EPA
Það er útlit fyrir að Freyr Alexandersson verði næsti stjóri Swansea í ensku Championship-deildinni. Það er hinsvegar mikil óvissa um það hvenær hann tæki þá við stjórnartaumunum.
Freyr mun stýra Rosenborg um helgina og umræða hefur verið um að hann gæti mögulega klárað þá þrjá leiki sem norska liðið á eftir áður en hann færi til Wales. Lokaumferðin í norsku úrvalsdeildinni verður 13. desember.
Stuðningsmenn Swansea eru ekki hrifnir af þeirri hugmynd að þeir þurfi að bíða svo lengi eftir að gengið verði frá ráðningu. Ashley Williams stýrir liðinu til bráðabirgða en það hefur ekki unnið leik síðan í október.

TENGT EFNI
Staðfestir að Freysi stýri gegn Molde - Er vilji leikmanna
„Það var ljóst að það hefði alltaf verið erfitt að ná honum fyrir nágrannaslaginn en við getum ekki beðið fram til 13. desember, þá eru fjórir leikir og mikilvæg stig í boði, og ætlast síðan til þess að hann nái að koma sér fyrir yfir jólin. Að mínu mati er þetta núna eða aldrei," segir Ian Roberts, stuðningsmaður Swansea, á X.
„Ef við þurfum að bíða til 13. desember þá er best að skoða eitthvað annað," skrifar annar.
„Að hann (Ashley Williams) stýri liðinu mögulega í fjóra leiki í viðbót áður en við ráðum nýjan stjóra er algjörlega glórulaust," segir einn stuðningsmaðurinn og virðist þetta endurspegla skoðanir flestra, samkvæmt Football Leage World.
„Að bíða fram í miðjan desember með að ráða stjóra gæti eyðilagt tímabilið, sérstaklega þegar beðið er eftir þjálfara sem hefur ekki sannað sig. Desember er annasamasti kafli tímabilsins; það er ekki mánuður sem hægt er að leyfa að kasta frá sér."
Freyr vill ekki yfirgefa Rosenborg á erfiðum tímapunkti þar sem liðið er í harðri baráttu um Evrópusæti og þrír leikir eru eftir. Rosenborg mætir Molde í gríðarlega mikilvægum leik á laugardag.
Swansea situr í 8. sæti ensku Championship-deildarinnar á meðan Rosenborg er í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 17 | +14 | 35 |
| 2 | Stoke City | 17 | +8 | 35 |
| 3 | Wolves | 17 | +12 | 34 |
| 4 | Birmingham | 17 | +15 | 32 |
| 5 | West Brom | 17 | +10 | 32 |
| 6 | Southampton | 17 | +16 | 28 |
| 7 | QPR | 17 | +7 | 28 |
| 8 | Swansea | 17 | +3 | 27 |
| 9 | Sheffield Utd | 17 | +6 | 26 |
| 10 | Portsmouth | 17 | +3 | 26 |
| 11 | Norwich | 17 | +9 | 25 |
| 12 | Blackburn | 17 | 0 | 25 |
| 13 | West Ham | 17 | +13 | 24 |
| 14 | Wrexham | 17 | -1 | 22 |
| 15 | Charlton Athletic | 17 | -7 | 20 |
| 16 | Bristol City | 17 | -10 | 19 |
| 17 | Cardiff City | 17 | -5 | 18 |
| 18 | Millwall | 17 | -6 | 18 |
| 19 | Bolton | 17 | -11 | 18 |
| 20 | Watford | 17 | -15 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 17 | -16 | 15 |
| 22 | Preston NE | 17 | -13 | 12 |
| 23 | Burnley | 17 | -11 | 11 |
| 24 | Derby County | 17 | -21 | 10 |