Fotbolti.net
26.11.26 - 16:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arkitektinn á bakvið nýju Meistaradeildina kynnti útfærslur á Bestu deildinni

Verður farið í breytingar á fyrirkomulaginu á Bestu deildinni?

Verður farið í breytingar á fyrirkomulaginu á Bestu deildinni?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍTF var með fundi um síðustu helgi og á þeim var farið yfir stöðuna á Bestu deildinni. Mikið hefur verið rætt og ritað um fyrirkomulagið á deildinni. Það eru tólf lið í deildinni og spiluð tvöföld umferð, eftir það er svo tvískipting og spilaðar fimm umferðir til viðbótar milli liðanna í efri hlutanum annars vegar og neðri hlutanum hins vegar.

Það gætir ekki alveg fullkomnu sanngirni því neðstu þrjú liðin í hvorum hluta fá færri heimaleiki en efstu þrjú liðin.
Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla
TENGT EFNI

Ekki vænlegt að fjölga liðum í Bestu deild karla

Pieter Nieuwenhuis hjá Hypercube er maðurinn sem á hvað mestan heiðurinn á bakvið breyttu fyrirkomulagi á Meistaradeildinni. Meistaradeildin var áður spiluð í átta riðlum en nú er 36 liða deild og dregið hvaða átta liðum hvert lið mætir og það út frá styrkleikaflokkum. Við það hefur myndast mikil spenna í lokaumferðunum og jafnt og þétt í gegnum deildarkeppnina eru stórlið að mætast.

Pieter fór yfir kosti og galla við hvert fyrirkomulag fyrir sig. Fram kom á kynningunni að sjónvarsprétthafinn, SÝN, sé hrifnastur af tveimur útfærslum. Önnur útfærslan væri sama fyrirkomulag og er nú farið eftir en í lok tímabils yrði umspil um síðasta Evrópusætið.

Það væru svo nokkrar mögulegar útfærslur á umspilinu en sú einfaldasta væri leikur milli 4. sætisins í efri hluta gegn efsta sætinu í neðri hluta. Nema ef bikarmeistararnir væru ekki eitt af efstu fjórum liðunum, þá yrði það liðið í þriðja sæti efri hlutans sem myndi mæta liðinu í efsta sæti neðri hlutans.

Hin útfærslan svipar til þeirrar sem er í Meistaradeildinni. Þá yrðu spilaðar sextán umferðir í deildarkeppninni og svo tvöföld umferð eftir tvískiptingu. Dregið yrði í fyrstu 16 umferðirnar út frá styrkleikaröðun, fjórum styrkleikaflokkum, sem miðast við tímabilið á undan. Það gefur auga leið í 16 leikjum myndu ekki öll lið spila heima og að heiman gegn öllum liðum, en tryggt væri að öll lið fengju átta heimaleiki og öll lið myndu mætast að minnsta kosti einu sinni. Lið í sama styrkleikaflokki frá tímabilinu á undan myndu mætast heima og að heiman fyrir tvískiptingu, og mögulega svo aftur eftir tvískiptingu.

Þessi útfærsla, Swiss-16 format, kemur best út þegar horft er í alla kosti og galla, hún kom svo enn betur út þegar bætt var við umspili um Evrópusæti í lokin.

Þetta eru þær tvær útfærslur sem sjónvarpsrétthafinn er spenntastur en fleiri útfærslur voru skoðaðar.

Það skal tekið fram að einungis umræður fóru fram, engin ákvörðun um eitt né neitt var tekið á fundum helgarinnar.

Sjö mismunandi útfærslur, tvær strax þurrkaðar út
Mynd: Hypercube


Kostir og gallar við hvert fyrirkomulag.
Mynd: Hypercube


Möguleg leikjaniðurröðun í 16 umferða deild
Mynd: Hypercube


Mögulegar útfærslur á umspili um Evrópusæti
Mynd: Hypercube


Pieter var í áhugaverðu spjalli við Hjörvar Hafliðason í Dr. Football í vikunni og er hægt að hlusta á það hér að neðan. Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, verður svo gestur í útvarpsþættinum Fótbolta.net á morgun.

Breytt fyrirkomulag á Meistaradeildinni hefur komið vel út.

Breytt fyrirkomulag á Meistaradeildinni hefur komið vel út.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.