Fotbolti.net
26.11.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"

Var að klára sitt þriðja tímabil í Garðabæ.

Var að klára sitt þriðja tímabil í Garðabæ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Örvar Eggertsson var að klára sitt þriðja tímabil sem leikmaður Stjörnunnar. Hann kom frá HK eftir tímabilið 2024.

Á liðnu tímabili skoraði hann átta mörk í deildinni og lagði upp átta. 2025 skoraði hann fjórtán mörk og lagði upp þrjú og á fyrsta tímabilinu í Garðabæ skoraði hann sex mörk og lagði upp tvö.

Tímabilið hjá Stjörnunni var sérstakt, tvisvar var þjálfara skipt út og liðið endaði í 7. sæti eftir að hafa verið spáð toppbaráttu í deildinni. Örvar ræddi við Fótbolta.net í dag.
Varð erfiðara og erfiðara með hverjum leiknum
„Þetta var mjög erfitt tímabil. Væntingarnar voru miklar og þetta varð bara erfiðara og erfiðara með hverjum leiknum hjá okkur. Þetta fer beint í reynslubankann," segir Örvar.

Liðið verði að aðlagast því
Hvað fannst þér um ákvörðunina að láta Jökul fara í júní?

„Auðvitað var það leiðinlegt en svo er þetta bara fótbolti eftir allt, þjálfarar eru reknir daglega og við sem lið þurfum að aðlagast því. Það er bara að spila fótbolta saman."

Tók hópurinn þessu illa, var það réttur fréttaflutningur á sínum tíma?

Nei, nei, þú veist, hópurinn á ekki að á að ráða neinu, ég veit ekki hvernig á að fara með svona mál."

Jón Þór tók við brotnu liði
Hvernig fannst þér þið sem lið vinna úr því að þjálfarinn var látinn fara, það kom inn nýr þjálfari, tengduð þið vel við Jón Þór? Hvernig gerir þú restina af tímabilinu upp?

„Jón Þór tekur náttúrulega við helvíti brotnu liði og ég held þetta hafi bara verið erfitt fyrir hann og okkur. Það er ekkert út á Jón Þór út að setja. Þetta var bara léleg spilamennska hjá leikmönnum. Við erum með marga stóra pósta í liðinu og enginn af okkur var að 'delivera'."

Kom ykkur á óvart þegar það var svo aftur breytt um þjálfara?

„Það kom mér allavega á óvart, ég bjóst nú við því að Jón Þór myndi klára út tímabilið."

Lið sem á alltaf að berjast á toppnum
Þið endið þetta í 7. sætinu, komið ykkur upp um eitt sæti með stórsigri í lokaumferðinni. Gerir það eitthvað fyrir ykkur?

„Nei, svo sem ekki. Stjarnan er klúbbur sem á alltaf að vera í efri hluta og að berjast um fyrsta eða annað sætið þar. Mér líður þannig, við erum með hóp í það og við eigum ekki að sætta okkur við að vera undir striki."

Hausinn frekar en formið sem truflaði
Það hefur verið umræða um leikform liðsins. Fannst þér þið vera í nógu góðu standi?

„Mér leið þannig á vellinum allavega, leið ekkert eins og lið væru að hlaupa yfir okkur. Það var aðallega bara á hausinn á leikmönnum og mér og öllum sem var að trufla held ég mest."

Svekktur þegar tilboði erlendis frá var hafnað
Fótbolti.net greindi frá því í að Valur hefði boðið í Örvar í sumarglugganum. Samkvæmt heimildum hafnaði Stjarnan 12 milljóna króna tilboði í Örvar.

Varðst þú eitthvað svekktur að því hafi ekki verið tekið?

„Nei, alls ekki. Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það. Ég er búinn að vera hér í þrjú ár núna og er að fara inn í það fjórða. Mér líður bara mjög vel hérna."

Það hefur heyrst af því að það kom upp möguleiki fyrir Örvar að fara erlendis. Örvar staðfestir að það hafi komið tilboð í sig en Stjarnan hafi hafnað því. Hann vildi ekki nefna félagið.

„Því var hafnað á sínum tíma. Jú, jú, þetta hefur alltaf verið draumur hjá mér að kíkja út og kannski kemur eitthvað annað aftur. Þannig það er bara hausinn upp og halda áfram."

Varðst þú svekktur með að tilboðinu var hafnað?

„Auðvitað var maður svekktur en maður skilur alveg ákvörðun félagsins."

Horfir meira í liðið heldur en sig sjálfan
Heilt yfir var tímabilið vonbrigðatímabil hjá Stjörnunni. Örvar kom að sextán mörkum, hvernig gengur hann sjálfur út úr tímabilinu?

„Ég horfi meira á frammistöðu liðsins og hún var ekki nógu góð. Auðvitað vildi ég gera betur og vera kannski tíu og tíu (mörk og stoðsendingar), fara yfir það strik. Og það er kannski stefnan fyrir næsta ár að skora nóg og leggja upp nóg og skila minni frammistöðu fyrir liðið."

Skilur ekki þá sem kvarta yfir æfingatímanum
Hvernig líst þér á að fá Rúnar Pál inn sem þjálfara?

„Bara mjög vel, hann er kominn með gott teymi líka í kringum sig. Mér líst bara vel á alla strákana. Þetta er áhugavert og spennandi."

Hefurðu einhverja skoðun á æfingatímanum, að það verði æft seinni partinn?

„Ég mæti bara þegar mér er sagt að mæta, ég skil ekki hvað menn eru að kvarta yfir æfingatímanum."

Vinnur hjá gröfufyrirtæki
Fréttamaður náði á Örvari í hádegishléi í vinnunni en hann starfar hjá gröfufyrirtæki.

„Þetta er bara smá smotterí til að hafa eitthvað að gera með boltanum. Ég vinn til fjögur ef það eru ekki æfingar fyrir það. Ég segi nú ekki að það sé mikill iðnaðarmaður í mér," segir Örvar á léttu nótunum.

Einn besti bakgrunnur sem hægt er að hafa
Það er mikill styrkleiki hjá Örvari hversu mikill íþróttamaður hann er, hann hleypur hratt, er líkamlega sterkur og hoppar hátt. Hvaðan kemur þetta?

„Pabbi og mamma voru bæði frjálsíþróttafólk. Pabbi fór á Ólympíuleikana á sínum tíma í kringlukasti og mamma var langhlaupari. Þetta kemur svolítið þaðan og ég stundaði frjálsar frá ungum aldri."

„Ég er í fótbolta, handbolta og frjálsum, allt á sama tíma með FH."

„Ég ákvað svo á fyrsta ári í þriðja flokki að ég sagði að fótboltinn yrði númer eitt."


Faðir Örvars er Eggert Ólafur Bogason sem fór á Ólympíuleikana í Seúl árið 1988.

Finnur þú alveg að þessi bakgrunnur hjálpar þér í fótboltanum?

„Ég held að frjálsar gefi bara einn besta grunnbakgrunn sem þú getur haft sem íþróttamaður."

Evrópuleikirnir svíða
Ef þú rétt lítur yfir þessi þrjú tímabil með Stjörnunni, ertu sáttur við þau?

„Við endum í fjórða sæti 2024, svo þriðja og núna sjöunda. Fyrstu tvö tímabilinu voru nú alveg flott en ég hefði viljað meira úr Evrópukeppninni fyrsta árið og svo aftur í ár. Það var ekki gott að detta út á móti Finnunum í ár, áttum að vinna það einvígi sannfærandi. 2024 dettum við út í Eistlandi, það var svolítill 'disaster' hjá okkur. Við unnum 2-1 á heimavelli en töpuðum svo 4-0 úti. Það var svolítið vont tap."

„Heilt yfir voru fyrstu tvö árin mjög góð en þriðja verra. En ég hef fulla trú á því að það birti til núna í Garðabænum þetta árið."


Hollast að fylgjast ekki of mikið með umfjölluninni
Hvernig er að vera leikmaður liðs þar sem það virðist vera stormur í kringum liðið og félagið?

„Fólk talar mikið og það er mikið sagt. Maður þarf bara að taka hausinn út úr þessu og kúpla sig niður og hugsa um fótbolta. Ég held að það sé það eina sem þetta snýst um. Ekki vera of mikið í símanum að hlusta á podcöst og lesa miðlana, það er svolítið þannig held ég."

Örvar segist sjálfur voða lítið fylgjast með umfjöllun um fótbolta og liðið. En eftir góðan leik, ertu þá líklegur til að stilla inn og horfa aftur?

„Ég horfi alltaf á leiki aftur, sama hvort ég sé lélegur eða góður. Það er bara allt í reynslubankann."

En þú lætur umfjöllunina að mestu leyti alla vega vera?

„Já, ég held það sé hollast fyrir mann."

Töpuðu í vítaspyrnukeppni gegn Ilves
Þú nefndir þessa leiki á móti Finnunum áðan, Ilves. Er eitthvað sem sat í þér í kringum þá leiki?

„Þetta var erfiður leikur, útileikurinn. Við fáum mark á okkur á 118. mínútu og svo var þetta bara vító. Við spiluðum mjög illa í fyrri hálfleiknum, gerðum okkur erfitt fyrir. Ég hélt við værum að ná að harka út sigurinn en svo gerðist ekki."

Völdu leikina sem þeir mættu í
Fannst þér neistinn hjá ykkur minnka eftir það tap?

„Tímabilið var svo sem búið þegar kom að einhverju til að keppa um, en maður þarf að mæta í alla leiki sem við gerðum hvort sem er ekki í lengri tíma. Við svolítið völdum hvaða leiki við mættum í, sem er ekki jákvætt"

Þurfa að ná stöðugleika
Ertu að vonast eftir að það verði meiri stöðugleiki núna sem kemur með Rúnari?

„Það verður bara að vera þannig hjá okkur, við þurfum stöðugleikann aftur og við þurfum að vinna alla leiki. Sama hvort það sé á móti neðstu liðunum eða efstu. Við getum ekki verið að velja okkur leiki."

Mjög sáttur í Garðabæ
Eins og Örvar sagði áðan þá líður honum vel í Garðabæ og það er ekkert fararsnið á honum.

„Ég er mjög sáttur," segir Örvar að lokum.
Kom að sextán mörkum í Bestu deildinni, átta mörk og átta stoðsendingar.

Kom að sextán mörkum í Bestu deildinni, átta mörk og átta stoðsendingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull var rekinn í júní.

Jökull var rekinn í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór tók við en var rekinn rúmum tveimur mánuðum seinna.

Jón Þór tók við en var rekinn rúmum tveimur mánuðum seinna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er mættur aftur í Stjörnuna.

Rúnar Páll er mættur aftur í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikill íþróttamaður.

Mikill íþróttamaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góður í langstökki.

Góður í langstökki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það.

Mér líður mjög vel í Garðabænum, ég held að Garðbæingar viti það.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Örvar er uppalinn hjá FH, hann er 27 ára og hefur verið hjá Víkingi, Fjölni, HK og Stjörnunni í meistaraflokki.

Örvar er uppalinn hjá FH, hann er 27 ára og hefur verið hjá Víkingi, Fjölni, HK og Stjörnunni í meistaraflokki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom frá HK eftir tímabilið 2023.

Kom frá HK eftir tímabilið 2023.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.