Fotbolti.net
26.11.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Liverpool gæti keypt Quansah til baka

Jarell Quansah.

Jarell Quansah.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Heil og sæl og verið velkomin í slúðurheima á fimmtudagsmorgni. BBC tekur saman það helsta sem er til umfjöllunar í ensku götublöðunum og víðar.
Liverpool hefur ekki útilokað að nýta sér endurkauparétt á Jarell Quansah (23), leikmanni Bayer Leverkusen. Það myndi þýða að enski varnarmaðurinn gæti snúið aftur til félagsins árið 2027 fyrir rétt rúmlega 50 milljónir punda. (Teamtalk)

Tottenham Hotspur hefur sent njósnara til að fylgjast með gríska sóknarmanninum Vangelis Pavlidis (28) sem leikur með Benfica. Enska félagið fylgist grannt með stöðu leikmannsins. (Record)

Paris St-Germain hefur sýnt Estevao Willian (19), brasilískum leikmanni Chelsea áhuga. PSG hefur misst nokkra sóknarleikmenn í meiðsli. (CaughtOffside)

Arsenal hefur bætt portúgalska kantmanninum Carlos Forbs (22), sem leikur með Club Brugge, á óskalista sinn fyrir janúargluggann. (Football Insider)

Liverpool hefur samið um að fá til sín kantmanninn Sidy Barhama Ndiaye (16) frá senegalska félaginu Diambars FC í janúar 2028. Þessi sextán ára gamli leikmaður vakti athygli með landsliði Senegal á heimsmeistaramóti U17-landsliða. (Sun)

Fikayo Tomori (28) gæti yfirgefið AC Milan og haldið til Atletico Madrid en enski miðvörðurinn er nú kominn á síðustu sex mánuði samnings síns. (Fichajes)

Everton mun ekki reyna að fá senegalska sóknarmanninn Paul Mendy (19) í janúar. Félagið hefur þó áfram áhuga á honum til lengri tíma litið. (Football Insider)

Gustavo Varela (21) sóknarmaður Monza hefur vakið áhuga félaga í ensku úrvalsdeildinni. Einnig fylgjast ítölsku félögin Napoli, Juventus, AC Milan og Inter með þessum portúgalska unglingalandsliðsmanni. (Gazzetta dello Sport)

Markvörðurinn Kepa Arrizabalaga (32), sem er á mála hjá Arsenal, hefur ekki fengið tilboð frá Valencia, þrátt fyrir fréttir þess efnis að hann gæti verið á leið aftur til heimalands síns. (AS)

Bayern München á góða möguleika á að framlengja samning við franska kantmanninn Michael Olise (24) en núverandi samningur hans rennur út árið 2029. (Foot Mercato)

Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á vinstri bakverði Fenerbahce, Archie Brown (24) ára. Riftunarákvæðí samningi Englendingsins hljóðar upp á um 19 milljónir punda. (Florian Plettenberg)
Pavlidis á blaði Spurs.

Pavlidis á blaði Spurs.

Canon

Mynd: EPA

Willian til PSG?

Willian til PSG?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.