26.11.26 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Rúnar, Viktor og Willum byrja

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Byrjunarlið kvöldsins hafa verið tilkynnt í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni og má sjá það helsta hér fyrir neðan.
Orri Steinn Óskarsson er ekki í byrjunarliði Real Sociedad sem heimsækir Crystal Palace. Arsen Zakharyan tekur sæti Orra Steins í byrjunarliðinu og sest Íslendingurinn á varamannabekkinn.
Í liði Palace eru það Eddie Nketiah, Yéremy Pino og Jean-Philippe Mateta sem leiða sóknarlínuna.
Sunderland hvílir ýmsa lykilmenn en teflir þó fram sterku liði á heimavelli gegn Jagiellonia frá Póllandi.
Willum Þór Willumsson er í byrjunarliði NEC Nijmegen sem tekur á móti franska félaginu Rennes. Dusan Tadic er með honum í byrjunarliði Nijmegen sem er með 7 stig eftir 4 umferðir í Evrópudeildinni.
Juventus mætir þá til leiks með varaliðið sitt á heimavelli gegn Omonia frá Kýpur þar sem hinn efnilegi Jeff Ekhator leiðir sóknarlínuna með Randal Kolo Muani og Nick Woltemade á bekknum.
Í sambandsdeildinni byrjar Kristian Nökkvi Hlynsson á bekknum er Twente á erfiðan útileik við Freiburg í Þýskalandi á meðan Rúnar Alex Rúnarsson og Viktor Bjarki Daðason eru báðir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar.
FCK heimsækir stigalaust lið Inter Escaldes til Andorra og er Rúnar Alex á milli stanganna vegna meiðsla Diant Ramaj aðalmarkvarðar. Viktor Bjarki leiðir sóknarlínuna með Andreas Cornelius ekki í hóp og þá er Gunnar Orri Olsen til taks á bekknum.
Lúkas Jóhannes Blöndal Petersson er þá á bekknum hjá Hoffenheim sem tekur á móti Sturm Graz en Sverrir Ingi Ingason er ekki með Panathinaikos vegna meiðsla.
Mohamed Salah er að lokum á sínum stað í byrjunarliði Trabzonspor sem heimsækir CSKA Sofia til Búlgaríu. André Onana er á milli stanganna og leiðir Paul Onuachu sóknarlínuna.
Crystal Palace: Henderson, Richards, Disasi, Canvot, Timber, Chilwell, Hughes, Kamada, Pino, Nketiah, Mateta
Real Sociedad: Marrero, Fort, Martin, Sarr, Munoz, Ochieng, Gorrotxategi, Turrientes, Guedes, Zakharyan, Oyarzabal
Sunderland Roefs, Hume, Alderete, Danso, Mandava, Sadiki, Rigg, Le Fee, Fofana, Angulo, Tuterov,
NEC Nijmegen Crettaz, Storm, Kaplan, Fonville, Bischoff, Lebreton, Nejasmic, Willum, Chery, Tadic, Linssen
Juventus Neto, Kelly, Gatti, Lucumi, Cabal, Cambiaso, Douglas Luiz, Sarr, Conceicao, Boga, Ekhator
Kaupmannahöfn: Rúnarsson, Suzuki, Delaney, Markgraf, Kral, Madsen, Lopez, Carrizo, Nemeth, Elyounoussi, Daðason
Trabzonspor Onana, Pina, Nwaiwu, Ozkacar, L.Cabral, Mendy, Bouchouari, Kabasakal, Saviolo, Salah, Onuachu