26.11.26 - 16:44
Elvar Geir Magnússon
„Martraðarstaða fyrir Alfreð“

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson.

Mynd: Rosenborg

Joacim Jonsson, sparkspekingur VG í Noregi, segir að Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, sé í hræðilegri stöðu varðandi þjálfaramál norska félagsins.
Freyr Alexandersson er líklega að taka við Swansea í ensku Championship-deildinni en Rosenborg er í harðri baráttu um Evrópusæti og á þrjá leiki eftir á tímabilinu.
Ákveðið er að Freyr stýri Rosenborg í mikilvægum leik gegn Molde um helgina og jafnvel talinn möguleiki að hann klári síðustu leikina með Rosenborg. Jonsson segir að staðan sé ansi snúin.

TENGT EFNI
Freysi ekki til Wales fyrir grannaslaginn
„Ef hann vill fara til Swansea þá er þetta búið og Rosenborg þarf strax að finna lausn," segir hann.
„Þetta er martraðarstaða fyrir Alfreð og í raun versta sem gat gerst. Ef Freyr er búinn að taka ákvörðun þá þarf að klára þetta mál sem fyrst. Það er enginn tilgangur í að draga þetta."
Hann telur að þó Freyr myndi hætta núna gæti Rosenborg vel klárað verkefnið út tímabilið og tryggt Evrópusæti.
„Það gæti þjappað mönnum saman, liðinu og stuðningsmönnum. Vandamálið yrði meira til lengri tíma litið því það er ekki auðvelt að finna annan þjálfara af sama tagi. Þetta hefur virkað ótrúlega vel."

Heimild: VG

Freyr Alexandersson.

Mynd: Rosenborg