Fotbolti.net
01.11.26 - 11:20
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Tilfinningaþrungin stund þegar Kaká sneri aftur á San Siro

Milan tók Kaka inn í frægðarhöll félagsins í gær

Milan tók Kaka inn í frægðarhöll félagsins í gær

Canon

Mynd: EPA

Kaká, fyrrum fótboltamaður AC Milan, sneri aftur á sinn gamla heimavöll, San Siro, þegar liðið mætti Inter í grannaslag í Seríu A á Ítalíu í gær. Það er óhætt að segja að endurkoman hafi verið tilfinningaþrungin, bæði fyrir Kaká og stuðningsmenn félagsins.
Kaká er einn besti fótboltamaður í sögu Milan og vann meðal annars hin eftirsóttu Ballon d'Or-verðlaun á sínum tíma hjá félaginu.

Hann varð ítalskur meistari, vann Meistaradeildina og HM félagsliða með Milan, en það er eiginlega ótrúlegt að hann og liðsfélagar hans hafi ekki unnið fleiri titla en raun bar vitni. Milan-liðið var enda stútfullt af stórstjörnum á þessum árum.

Kaká var lykilmaður í sóknarleik liðsins og átti stóran þátt í því að koma Milan tvisvar sinnum í úrslit Meistaradeildarinnar.

Milan tók Kaká formlega inn í frægðarhöll félagsins fyrir leikinn gegn Inter í gær og það var greinilegt að endurkoman á San Siro vakti sterkar tilfinningar hjá Brasilíumanninum.

Stuðningsmennirnir tóku vel á móti gömlu hetjunni sinni og gáfu honum standandi lófaklapp ásamt því að syngja nafn hans hástöfum. Það snerti Kaká djúpt og hann átti erfitt með að halda aftur af tárunum, eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.