Fotbolti.net
01.11.26 - 12:11
Brynjar Ingi Erluson

Framherji Bayern frá í þrjá mánuði

Ismael Saibari

Ismael Saibari

Canon

Mynd: EPA

Marokkóski fótboltamaðurinn Ismael Saibari verður frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði eftir að hafa meiðst í stórleik Bayern München gegn Borussia Dortmund í gær.
Þýskaland: Kane sýndi gullboltann og klikkaði á víti í stórleiknum
TENGT EFNI

Þýskaland: Kane sýndi gullboltann og klikkaði á víti í stórleiknum

Saibari var ein helsta ógn Bæjara í leiknum, en þurfti að fara af velli eftir að hafa meiðst á ökkla.

Bæði hann og Serge Gnabry meiddust í leiknum, en meiðsli Saibari eru talin mun alvarlegri.

Samkvæmt BILD verður Saibari frá keppni næstu þrjá mánuði, á meðan Gnabry er talinn verða frá í nokkrar vikur.

Það voru þó ekki einu slæmu fréttirnar fyrir Bæjara, því Michael Olise sást einnig haltra þegar hann gekk í liðsrútuna eftir leikinn.

Álagið er farið að segja til sín hjá Bayern og gæti félagið þurft að leita á leikmannamarkaðinn eftir áramót.

Þrátt fyrir 2-2 jafntefli gegn Dortmund í gær er Bayern áfram á toppi deildarinnar á markatölu, en liðið hefur aðeins náð í fimm stig úr fyrstu þremur leikjum sínum í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.