Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. desember 2021 13:06
Elvar Geir Magnússon
Man Utd mun leika við Young Boys á Old Trafford
Old Trafford.
Old Trafford.
Mynd: EPA
Manchester United óttaðist að þurfa að spila síðasta leik sinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, gegn Young Boys frá Sviss, á hlutlausum velli.

Svissneskar reglur segja að þeir sem ferðast frá Bretlandi þurfi að fara í tíu daga einangrun við komuna til landsins. Young Boys hefur hinsvegar fengið undanþágu frá yfirvöldum og sleppur við sóttkví.

Manchester United mætir Young Boys því á Old Trafford eftir viku. Um er að ræða leik í lokaumferð A-riðils en Manchester United er þegar búið að vinna riðilinn. Young Boys á möguleika á að komast í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.

F-riðill:
Manchester United er búið að vinna riðilinn. Atalanta mun fylgja í 16-liða úrslitin með því að vinna Villarreal.

Lokaumferðin 8. desember:
Atalanta - Villarreal
Manchester United - Young Boys

1. Man Utd 10 stig
2. Villarreal 7 stig
3. Atalanta 6 stig
4. Young Boys 4 stig

Athugasemdir
banner
banner