Knattspyrnudeild Hauka auglýsir eftir þjálfurum til starfa hjá yngri flokkum deildarinnar fyrir tímabilið 2024-2025.
Mikil uppbygging hefur verið í starfi deildarinnar og glæsilegt knattspyrnuhöll mun gjörbreyta allri aðstöðu knattspyrnudeildar Hauka í mjög vaxandi hluta Hafnarfjarðar þar sem ný íbúðahús rísa af miklum krafti í Skarðshlíð, Hamranesi og víðar.
Vegna aukningu á iðkendum þá leitum við að öflugum þjálfurum til að taka þátt í skemmtilegum verkefnum sem framundan eru. Boðið er upp á lifandi og skemmtilegt starf hjá félagi í örum vexti við frábærar aðstæður til knattspyrnuiðkunar.
Óskað er eftir þjálfurum fyrir
Þjálfari í 2. Fl. kk
Þjálfari í 6. Fl. kk
Þjálfara í 7. Fl. kk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjálfaragráða frá KSÍ eða áætlun um að mennta sig sem þjálfari
- Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af þjálfun barna og ungmenna
- Brennandi áhugi á þjálfun
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
- Frumkvæði og drifkraftur
- Almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
- Hafi gott skipulag á hlutunum og sé stundvís
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfið
Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá viðkomandi flokki eða
flokkum
Þátttöka í mótum viðkomandi flokks eða flokka
Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler
Notkun á VEO og annara verkfæra þar sem það á við
Samskipti við foreldraráð viðkomandi flokka vegna skipulagningu móta
og/eða keppnisferða
Samstarf við þjálfara félagsins
Þjálfari vinnur samkvæmt gildum deildarinnar : ÞRAUTSEIGJA LIÐSHEILD
HUGREKKI GLEÐI
Umsóknarfrestur er til 15 des n.k.
Umsóknir og nánari upplýsingar sendast til yfirþjálfara yngri flokka, Dusan Ivkovic á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Athugasemdir