Fotbolti.net
09.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Þakkar De Zerbi eftir félagaskiptin: Maður orða sinna

Þakkar De Zerbi eftir félagaskiptin: Maður orða sinna
Canon

Mynd: EPA

Ítalski markvörðurinn Guglielmo Vicario þakkar Roberto De Zerbi þjálfara Tottenham fyrir að hafa fengið félagaskipti til Juventus.
Vicario til Juventus (Staðfest)
TENGT EFNI

Vicario til Juventus (Staðfest)

Vicario er byrjunarliðsmarkvörður undir stjórn Luciano Spalletti hjá Juve en hjá Tottenham var hann í öðru sæti í baráttunni við Antonín Kinský um byrjunarliðssæti.

Vicario, sem er samningsbundinn Tottenham til 2028, skipti um félag á lánssamningi með kaupmöguleika sem hljóðar upp á 10 milljónir evra.

„Ég vil þakka Roberto (De Zerbi) sérstaklega fyrir. Hann var alltaf heiðarlegur við mig og sannaði að hann er maður orða sinna. Hann gaf mér tækifæri til að taka skrefið til Juventus og stóð við bakið á mér og fyrir það mun ég alltaf vera honum þakklátur," sagði Vicario í viðtali við Sky Sport Italia.

Vicario hefur leikið 117 leiki á þremur árum hjá Tottenham. Hann er 29 ára gamall og með 5 landsleiki að baki fyrir Ítalíu, þar sem Gianluigi Donnarumma er aðalmarkvörður.
Þakkar De Zerbi eftir félagaskiptin: Maður orða sinna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.