Fotbolti.net
09.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

„Trent er ekki miðjumaður"

„Trent er ekki miðjumaður"
Canon

Mynd: EPA

José Mourinho þjálfari Real Madrid fór víðan völl í viðtali eftir 2-1 sigur gegn Inter í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Hann var meðal annars spurður út í Trent Alexander-Arnold sem byrjaði á miðjunni.
Real Madrid er að glíma við meiðslavandræði og voru nokkrir miðjumenn í leikbanni í gærkvöldi. Því var Trent á miðjunni ásamt fyrirliðanum Federico Valverde og stórstjörnunni Jude Bellingham.

Trent er hægri bakvörður að upplagi en hefur mistekist að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður í liði Real Madrid frá félagaskiptunum frá Liverpool í fyrrasumar.

„Hann hefur áður spilað sem miðjumaður með Englandi og Liverpool en hann er ekki miðjumaður. Hann spilaði mjög vel í kvöld, hann var frábær taktískt séð," sagði Mourinho eftir leikslok. „Ég er þakklátur fyrir frammistöðuna. Hann og Valverde voru báðir mjög góðir á miðjunni.

„Hann missti af nokkrum boltum útaf því að hann var að spila út úr stöðu. Hann lagði allt í sölurnar og kom af velli þegar tankurinn var alveg tómur."


Trent var skipt af velli á 79. mínútu fyrir Aurelién Tchouaméni, sem hefur verið að glíma við meiðsli.

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi
TENGT EFNI

Mourinho: Sá sem ákvað þetta var kannski sofandi

„Trent er ekki miðjumaður"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.