Fotbolti.net
09.09.26 - 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sex bikarmeistarar hjá Blikum og tveir hjá Aftureldingu

Blikar hafa einu sinni unnið bikarkeppnina, árið 2009.

Blikar hafa einu sinni unnið bikarkeppnina, árið 2009.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Mjólkurbikarinn
Á föstudagskvöld mætast Breiðablik og Afturelding í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Afturelding kemst í úrsltialeik keppninnar og í þriðja sinn sem Blikar komast svona langt. Í báðum leikmannahópum eru bikarmeistarar.

Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Aftureldingar, vann keppnina 2015 og 2016 og Birkir Már Sævarsson, samherji Kristins í Aftureldingu, spilaði tvo bikarleiki með Val tímabilið 2005 þegar liðið varð bikarmeistari. Birkir var í liðsstjórn í úrslitaleiknum 2005, en Kristinn Freyr byrjaði báða úrslitaleikina.
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
TENGT EFNI

Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?

Í leikmannahópi Breiðabliks eru sex leikmenn sem hafa unnið bikarkeppnina. Kristinn Jónsson og Kristinn Steindórsson byrjuðu leikinn 2009 þegar Breiðablik vann Fram eftir vítaspyrnukeppni. Andri Rafn Yeoman kom svo inn á sem varamaður.

Aron Bjarnason vann keppnina sem leikmaður Fram árið 2013 og Anton Ari Einarsson varði mark Vals gegn ÍBV 2016 og var á bekknum gegn KR 2015. Ívar Örn Árnason vann svo keppnina með KA árið 2024 þegar liðið sigraði Víking.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, vann keppnina sem leikmaður árið 2001 með uppeldisfélaginu Fylki. Fylkir vann þá KA í úrslitaleiknum. Markmannsþjálfarinn Haraldur Björnsson vann keppnina árið 2018 en þá vann Stjarnan einmitt Breiðablik í úrslitaleik. Sá leikur fór í vítaspyrnukeppni.

Þórður Ingason, markmannsþjálfari Aftureldingar, er mjög sigursæll í bikarnum en hann vann keppnina fjórum sinnum sem leikmaður Víkings.
Kristinn Freyr vann bikarinn 2015 og 2016.

Kristinn Freyr vann bikarinn 2015 og 2016.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Anton Ari og Halli Björns hafa báðir unnið bikarinn.

Anton Ari og Halli Björns hafa báðir unnið bikarinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.