09.09.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Arsenal ekki sektað þrátt fyrir að aflýsa fundi

Mikel Arteta á fréttamannafundi í fyrra.

Mynd: EPA

Arsenal heimsækir Napoli í Meistaradeildinni í kvöld en enska félagið þurfti að aflýsa fréttamannafundi sínum fyrir leikinn.
Reglur UEFA kveða á um að félög þurfa að halda fréttamannafundi fyrir Evrópuleiki, annars verði þau sektuð. Félög sleppa þó við sekt ef aðstæður eru taldar óumflýjanlegar og það á við í þessu tilfelli.

TENGT EFNI
Meistaradeildin í dag - Stórleikir á Englandi og Ítalíu
Ástæðan fyrir því að fréttamannafundinum var aflýst er sú að vandræði hafa verið í kringum ferðalag Englandsmeistarana til Ítalíu.
Miklar truflanir hafa verið á flugi í Bretlandi vegna tæknibilunar í flugumsjónarkerfi og lið Arsenal varð fyrir barðinu á þeirri bilun.
Arsenal komst ekki til Napoli í tæka tíð fyrir fréttamannafundinn en liðið lenti um 21:30 í gærkvöldi. Leikurinn verður í kvöld klukkan 19:00.