09.09.26 - 08:39
Elvar Geir Magnússon
Hræðilegt kvöld fyrir Curtis Jones í Meistaradeildinni

Curtis Jones í baráttu við annan fyrrum leikmann Liverpool, Trent Alexander-Arnold.

Mynd: EPA

Bleika blaðið, La Gazzetta dello Sport, talaði um gjafirnar frá Inter.

Mynd: La Gazzetta dello Sport

Enska blaðið Mirror talar um martraðarleik hjá Curtis Jones fyrir Inter þegar liðið tapaði 2-1 gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í gær.
Real Madrid komst yfir eftir um þrettán mínútur og var markið gjöf frá Jones sem var að hanga á boltanum á hættulegu svæði áður en hann átti slaka spyrnu sem Yann Bisseck náði ekki að ráða við og Kylian Mbappe refsaði, braut ísinn.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd
Curtis Jones var keyptur til Inter frá Liverpool fyrir 30 milljónir punda í sumar og hafði farið býsna vel af stað með liðinu í ítalska boltanum. Hann var hinsvegar í miklu brasi á Bernabeu í gær.
Ítalskir fjölmiðlar fjalla ítarlega um gjafmildi Inter en annað mark Madrídinga var gjöf frá Josep Martínez, markverði ítalska liðsins.