09.09.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Konsa um tæklinguna: Rogers er góður vinur minn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aston Villa reyndist spútnik lið ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og seldi marga lykilmenn í sumar.
Ezri Konsa gekk til liðs við Arsenal á meðan Morgan Rogers fór til Chelsea fyrir metfé og mættust þeir í þriðju umferð úrvalsdeildartímabilsins.
Konsa var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik frá félagaskiptunum og stóð hann sig feykilega vel. Hann var fljótur að vinna stuðningsmenn Arsenal á sitt band með glæsilegri tæklingu á góðvini sínum og fyrrum liðsfélaga Morgan Rogers.
Arsenal var 2-1 yfir seint í leiknum þegar Rogers virtist vera við það að sleppa einn í gegn, þar til Konsa vann boltann af honum með stórkostlegri tæklingu og uppskar mikil fagnaðarlæti af pöllunum. Það hefur hjálpað að Arsenal mistókst að kaupa Rogers í sumar og þegar hann skoraði fyrsta markið á Emirates fagnaði hann að hætti Thierry Henry, stuðningsmönnum Arsenal til mikillar gremju.
„Sem varnarmaður þá elska ég að fara í tæklingar og 50/50 bolta. Hann (Morgan Rogers) er góður vinur minn en þegar við mætumst á vellinum þá erum við ekki lengur vinir. Ég veigra mér ekki við að tækla neinn," sagði Konsa.
Englandsmeistarar Arsenal eru með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju úrvalsdeildartímabili.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +8 | 15 |
| 2 | Arsenal | 5 | +4 | 12 |
| 3 | Brighton | 5 | +11 | 10 |
| 4 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 5 | Leeds | 5 | +4 | 9 |
| 6 | Liverpool | 5 | +3 | 9 |
| 7 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 8 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 9 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 10 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 11 | Ipswich Town | 5 | -4 | 6 |
| 12 | Man Utd | 5 | 0 | 5 |
| 13 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 14 | Sunderland | 5 | -4 | 4 |
| 15 | Crystal Palace | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 17 | Bournemouth | 5 | -2 | 3 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Fulham | 5 | -3 | 2 |
| 20 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |