02.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Barthez til Marseille (Staðfest)




Marseille hefur endanlega gengið frá lánssamningi við á markverðinum Fabien Barthez frá Manchester United. Barthez hefur ekki verið í myndinni hjá Manchester United eftir að Tim Howard kom til liðsins og þá hefur Roy Carroll einnig komist framfyrir í goggunarröðinni. Kappinn hefur æft með Marseille upp á síðkastið en samningurinn gat ekki gengið í gegn fyrr en félagsskiptaglugginn opnaði. Barthez mun vera hjá Marseille fram á sumar en þá gæti franska félagið keypt kappann en hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Strasbourg annað kvöld í franska bikarnum.
