Fotbolti.net
02.01.05 - 13:53

Boumsong til Newcastle (Staðfest)

Boumsong til Newcastle (Staðfest)
Canon
Newcaste hafa gengið frá kaupunum á franska landsliðsmanninum Jean Alain Boumsong frá Rangers. Lengi vel leit út fyrir það að hann færi til Liverpool síðastliðið sumar en ekkert varð úr því og hann fór í staðinn til Rangers fyrir ekki neitt. Kaupverðið er 8 milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli varnarmaður skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Newcastle og spilar líklega sinn fyrsta leik gegn Yeading í FA bikarkeppninni um næstu helgi.

"Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við annað stórlið, þessvegna skrifaði ég undir langtímasamning" sagði Boumsong við opinbera heimasíðu Newcastle. "Ég spilaði gegn Alan Shearer á æfingamóti fyrir tímabilið og er mjög stoltur af því að spila nú með honum.

Ég vil biðja fólkið á Ibrox afsökunar á því að fara svona snemma frá þeim en ég vona að þau séu ekki reið út í mig. Newcastle mun spila þar næsta sumar og ég vona að áhorfendur helli ekki úr skálum reiðar sinnar yfir mig."


Graeme Souness stjóri liðsins var mjög ánægður með að klófesta loksins leikmnninn sem hann hafði áður gert tvö tilboð í: "Við teljum að hann geti haft mikil áhrif hjá félaginu, bæði núna strax sem um ókomna framtíð. Hann hefur mikinn metnað um a vera meðal þeirra bestu."

Boumsong eru önnur kaup Souness á tímabilinu en Celestine Babayaro kom til liðsins í fyrradag frá Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.