02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Dani til Zaragoza (Staðfest)




Real Zaragoza hefur fengið framherjann Dani frítt eftir að hann var leystur undan samningi hjá Barcelona í fyrra. Hinn 29 ára Dani var ekki lengi án félags en Zaragoza stökk til og fékk kappann en hann lék einmitt með liðinu á árunum 1995-1997. Þaðan fór hann til Mallorca og var kominn í landslið Spánverja. Hann fór til Barcelona árið 1999 og skoraði ellefu mörk í 27 leikjum fyrir félagið á sinni fyrstu leiktíð. Síðan þá hefur hann átt erfitt uppdráttar og aðeins leikið 23 leiki með Barcelona frá haustinu 2000.
