Fotbolti.net
02.02.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Ricardinho til Middlesbrough (STAÐFEST)

Ricardinho til Middlesbrough (STAÐFEST)
Canon
Middlesbrough hefur fengið þriðja brasilíumanninn til liðs við sig en miðjumaðurinn Ricardinho er kominn til þeirra samkvæmt fréttastofu Sky. Þessi 27 ára leikmaður hefur verið orðaður mikið við England eftir siguinn á HM 2002, en hann kom inn í hóp Brasilíu þar í stað Emerson sem meiddist.
Leeds var næstum búið að kaupa hann þegar Terry Venables var við stjórnvölinn hjá liðinu en það rann út í sandinn. Nú er Ricardinho samninglaus og yfirgefur Sao Paulo.

Boro hefur þegar tvo Brasilímenn í sínum herbúðum, Juninho og Doriva. Ricardinho verður sjötti Brasilíumaðurinn í sögunni sem kemur á Riverside, hann fetar í fótspor Juninho, Doriva, Branco, Emerson og Fabio.

Middlesbrough vonast einnig til að geta bætt við sóknarmanni... en tíminn er að renna út!

UPPFÆRT
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.