Fotbolti.net
02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Leeds fær Caldwell (Staðfest) en óvíst með LuaLua

Stephen Caldwell (til vinstri) fagnar marki ásamt Gary Speed.

Stephen Caldwell (til vinstri) fagnar marki ásamt Gary Speed.

Canon
Leeds United hefur fengið skoska varnarmanninn Stephen Caldwell að láni út þessa leiktíð frá Newcastle. Þessi 23 ára skoski landsliðsmaður hefur ekki fengið mörg tækifæri með Newcastle á leiktíðinni og aðeins verið tvisvar í byrjunarliði. Hann spilaði mikið með liðinu tímabilið 2000/2001 en hann kom til liðsins árið 1997.
Leeds mun hinsvegar líklega ekki fá sóknarmanninn Lomano Tresor LuaLua frá Newcastle þar sem að kappinn vill ekki fara á láni til Leeds. Newcastle var búið að samþykkja að leyfa LuaLua að fara en þessi 23 ára sóknarmaður vill alls ekki fara til Leeds. LuaLua hefur leikið ellefu leiki á tímabilinu með Newcastle en ekki ennþá náð að skora.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.