02.02.04 - 00:00
Martin Taylor til Birmingham (Staðfest)




Birmingham hefur fest kaup á varnarmanninum Martin Taylor fyrir 1,25 milljónir punda frá Blackburn Rovers. Steve Bruce framkvæmdarstjóri Birmingham hefur reynt að krækja í Taylor frá því að leikmannakaupaglugginn opnaðist en náði að ganga frá samningum núna rétt fyrir lokun.
Taylor hefur verið inn og útúr liði Blackburn í vetur en spilaði meira en 30 leiki á síðasta tímabili fyrir Blackburn þegar þeir enduðu í sjötta sæti deildarinnar og tryggðu sér Evrópusæti. Birmingham sárvantaði varnarmann eftir að það kom í ljós að Matthew upson myndi verða frá í 6-8 vikur og er Taylor ætlað að fylla þetta skarð. Drengurinn knái getur spilað allar stöður varnarinnar og þykir Steve Bruce ánægjulegt að fá fjölhæfan leikmann á borð við Taylor til liðs við sig.
