02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Dortmund fær Brassa (Staðfest)

Amoroso leikmaður Dortmund er einn af sjö Brasilíumönnum hjá Dortmund.


Amoroso leikmaður Dortmund er einn af sjö Brasilíumönnum hjá Dortmund.

Þýska liðið Borussia Dortmund hefur fengið brasilíska sóknarmanninn Anderson Thiago de Souza og er hann sjöundi Brasilíumaðurinn í herbúðum Dortmund sem að fer bráðum að stilla upp byrjunarliði bara skipað Brössum. Hinn 19 ára de Souza sýndi góð tilþrif með Dortmund í æfingabúðum á Marbella en Flavio Conceicao er góður vinur hans og benti Dortmund á kauða. de Souza var án félags og samdi hann við Dortmund til 2005. Hann lék seinast með União São João en það er félagið sem að Roberto Carlos vinstri bakvörður Real Madrid hóf ferilinn hjá.
