02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Xavier til Hannover (Staðfest)




Þýska liðið Hannover 96 hefur fengið varnarmanninn Abel Xavier. Fyrr í dag leysti Liverpool hinn 31 árs Xavier undan samningi og því þarf Hannover ekki að borga krónu fyrir kauða. Xavier er búinn að skrifa undir samning til ársins 2005 en hann var fyrr á tímabilinu í láni hjá Galatasary. Hann kom til Liverpool frá grönnunum í Everton árið 200 og vakti það mikla athygli. Xavier er búinn að missa sæti sitt í portúgalska landsliðinu en hann lék seinast með liðinu á HM 2002.
