Fotbolti.net
02.03.20 - 14:22
Elvar Geir Magnússon

Klopp kemur Lovren til varnar: Framúrskarandi miðvörður

Dejan Lovren.

Dejan Lovren.

Canon

Mynd: Getty Images

Joe Gomez var hvíldur vegna smávægilegra meiðsla þegar Liverpool tapaði mjög óvænt 3-0 fyrir Watford um liðna helgi í enska boltanum.

Króatinn Dejan Lovren kom inn í liðið en hann fékk mikla gagnrýni fyrir slaka frammistöðu.

Jurgen Klopp segist ekki hlusta á þær raddir sem kenna Lovren um úrslitin.
„Ef einhver kennir Dejan Lovren um tapið þá get ég ekki hjálpað því fólki," segir Klipp.

„Það var alvöru áskorun fyrir Lovren að spila gegn Troy Deeney. Joe Gomez hefur lent í svipuðum vandamálum."

„Dejan og Joe hafa báðir átt frábæra leiki fyrir okkur í hjarta varnarinnar. Dejan er framúrskarandi miðvörður. Ef þú getur nefnt mér einn leikmann á laugardaginn sem lék eftir eðlilegri getu þá kæmi mér það á óvart."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.