Fotbolti.net
02.06.04 - 10:22
Magnús Már Einarsson

Mourinho til Chelsea (Staðfest)

Mourinho til Chelsea (Staðfest)
Canon
Jose Mourinho stjóri Porto hefur verið ráðinn stjóri og þjálfari aðalliðs Chelsea en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Chelsea. Reyndar kemur þetta ekki ýkja mikið á óvart en Mourinho hefur lengi verið orðaður við Chelsea og meðal annars var hann mjög vandræðalegur þegar að Porto vann Meistaradeildina, tók af sér verðlaunapeninginn og tók ekki þátt í fagnaðarlátum sinna manna og var greinilega með hugann við England. Þegar að Claudio Ranieri var svo rekinn á mánudaginn þá þótti nokkuð ljóst að Mourinho myndi taka við.
Mourinho sagði ýmislegt athyglisvert á fundinum og ljóst er að einhverjar breytingar verða á leikmannahópi Chelsea í sumar en Mourinho vill aðeins hafa 21 útileikmann í hópnum sínum plús markverðina.

"Ég hef lesið marga hluti. 'Hvernig á að þola pressuna og stóru leikmennina og metnaðinn sem að fylgir því að byrja að vinna titla. Þetta er það sem ég elska. Þetta erþað sem að ég elska í fótboltanum.

"Þetta er stór áskorun fyrir mig, vegna gæða hvers liðs í ensku úrvalsdeildinni. England er fyrir mér með mikla ástríðu fyrir fótbolta. Þegar að hlutirnir gengu vel hjá mér og Porto þá fann ég að einhverjir stórir klúbbar vildu fá mig, ég var í aðstöðu þar sem að ég þurfti að velja.

"Það var frábær aðstaða og ég held að Chelsea sé frábært val. Enskur fótbolti og Chelsea eru uppáhaldið mitt en ég talaði samt bara fyrst við þá um helgina. Ég var heillaður, þeir elska fótbolta jafnmikið og ég geri. Þeir vilja vinna jafnmikið og ég vil vinna."
Sagði Mourinho á blaðamannafundinum í morgun.

Mourinho sagði einnig að hann gæti vel tekið einhverja af starfsmönnum sínum frá Porto með til Englands en hann býst ekki við að taka marga leikmenn.

Hann vill eins og fyrr segir vinna með lítinn hóp en hann sagði í morgun.

"Varðandi samstarfsfélaga mína að þá ólumst við saman upp, ég hef trú á þeim og ég veit að það er hægt að leita til þeirra.

Ég verð að segja að ég ber virðingu fyrir fagmennskuni hjá félaginu (Chelesa) nú þegar. Ég get ekki sagt hverjir eða hversu margir munu koma til liðsins í sumar.

En ef að ég myndi kaupa alla þá leikmenn sem að eru orðaðir við Chelsea í blöðunum þá myndi ég hafa 50 manna leikmannahóp. Ég vil það ekki.

Ég vil lítin hóp. Ég vil hafa 21 útileikmann plús markverðina. Ég verð að hitta Herra Kenyon áður en að ég ákveð hverja ég vil kaupa.

Í sambandi við leikmenn Porto þá elska ég þá alla og óska þeim alls hins besta."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.