Fotbolti.net
02.07.04 - 07:19
Magnús Már Einarsson

Nilsson til Southampton í nóvember (Staðfest)

Nilsson til Southampton í nóvember (Staðfest)
Canon
Sænski miðjumaðurinn Mikael Nilsson hefur samið við Southampton og mun ganga til liðs við liðið í nóvember þegar að samningur hans við Halmstad rennur út. Nilsson er fastamaður í liði Svía en hann lék alla leiki liðsins frá upphafi til enda á EM, ýmist á hægri kanti eða í hægri bakverði. Southampton hefur gert Halmstad tilboð og vonast til þess að Nilsson megi fara fyrr frá félaginu og koma til Southampton áður en að enska úrvalsdeildin byrjar.
Nilsson sem að hittir landa sína Anders Svensson og Michael Svensson hjá Southampton sagði við heimasíðu liðsins "Ég er mjög spenntur fyrir þessari áskorun og get ekki beðið eftir að ganga til liðs við Southampton."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.