Fotbolti.net
02.07.04 - 08:27

Samuel til Real Madrid (Staðfest)

Samuel til Real Madrid (Staðfest)
Canon
Walter Samuel skrifaði undir fimm ára samning við stórlið Real Madrid í gær. Argentínumaðurinn stóðst læknisskoðun í gærdag og skrifaði í kjölfarið undir samninginn sem mun færa Samuel vænlega kauphækkun.
Samuel segist ekki finna fyrir neinni pressu þrátt fyrir gífurlega háa upphæð sem Real pungaði út fyrir honum en Roma fengu í sinn hlut 22 milljónir punda. Í fréttinni má sjá myndir af því þegar Samuel lenti á Spáni og þá talaði hann við blaðamenn:
"

"Ég er stoltur af því að Real ákvað að kaupa mig. Ég finn ekki fyrir neinni aukinni pressu af því að koma til Real af því að hana hef ég alltaf haft hjá liðunum sem ég hef leikið með. Markmið mitt er bara að spila vel og hjálpa Real að vinna titla"


Eftir að Real fataðist flugið á síðasta tímabili rak það þjálfara sinn og nú er byrjað að kaupa. Samuel er fyrstur í röðinni en líklega munum við fá að sjá fleiri menn ganga til liðs við Real áður en sumrinu lýkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.