02.07.04 - 15:24
Magnús Már Einarsson
Milner til Newcastle (Staðfest)




Newcastle hefur keypt vinstri kantmanninn James Milner frá Leeds United á fimm milljónir punda. Milner hefur skrifað undir fimm ára samning við Newcastle en umboðasmaður kauða segir að Milner fari frá Leeds með söknuð í hjarta. Umbinn segir að Milner sé ánægður að peningarnir af sölunni geti hjálpað Leeds og bætir við að það hafi enginn leikmaður verið meira trúr sínu félagi en Milner. Hinn 18 ára gamli Milner skrifaði undir fimm ára samning við Leeds í fyrra en yfirgefur nú sitt uppáhaldslið.
Strákurinn er yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi en hann skoraði í desember 2002 og bætti þar með met Wayne Rooney en Milner var 16 ára og 357 daga þegar að hann skoraði sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni.
Milner er einnig næstyngsti leikmaðurinn sem að hefur leikið í ensku úrvalsdeildinni en sá yngsti er Gary McSheffrey sem að lék með Coventry.
Milner er einnig næstyngsti leikmaðurinn sem að hefur leikið í ensku úrvalsdeildinni en sá yngsti er Gary McSheffrey sem að lék með Coventry.
