Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júlí 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Partey áhugi Arsenal eykst
Mynd: Getty Images
Áhugi Arsenal á Thomas Partey, miðjumanni Arsenal, er að aukast samkvæmt frétt The Athletic.

Partey er sjálfur sagður vera spenntur fyrir því að ganga í raðir Arsenal í sumar.

Þessi 27 ára gamli leikmaður er með riftunarverð í samningi sínum upp á 45 milljónir punda.

Arsenal vill ekki borga svo háa upphæð og vonast til að hægt verði að semja við Atletico um lægra kaupverð í sumar.

Partey hefur verið öflugur í liði Atletico Madrid undanfarin ár en hann kom inn í aðallið félagsins árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner