Fotbolti.net
20.09.26 - 19:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alex Freyr: Þakklátur að þurfa ekki að fara í höfuðborgina

Auglýsing
Alex Freyr: Þakklátur að þurfa ekki að fara í höfuðborgina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við virðum ekki þá yfirburði sem við sköpum og því fór sem fór," sagði Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV, eftir jafntefli gegn Val í dag en Valur jafnaði metin í blálokin.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Valur
Það eru þrjár umferðir eftir en ÍBV er á botninum, fjórum stigum frá öruggu sæti. Liðið fer tvisvar til Akureyrar, í næstu umferð mætir liðið Þór og í síðustu KA, liðið fær síðan FH í heimsókn í millitíðinni.

„Mér líður mjög vel fyrir norðan. Mér finnst gott að spila út á landi. Ég er rosalega þakklátur að þurfa ekki að fara í höfuðborgina," sagði Alex Freyr.

Mikil umræða hefur skapast um fyrirkomulagið í deildinni þar sem Víkingur hefur tryggt sér titilinn og fá lið hafa einhverju að keppa í síðustu leikjunum.

„Ég er sammála því að þetta hefur ekki æxlast eins og upphaflega planið var. Það má færa rök fyrir því að það eigi að breyta aftur. Hvort sem það sé að fara í 14 lið eða reyna eitthvað annað," sagði Alex Freyr.

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.