Fotbolti.net
02.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Clément Lenglet til Benfica (Staðfest)

Clément Lenglet til Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Franski varnarmaðurinn Clément Lenglet er búinn að samþykkja að skipta yfir til portúgalska stórveldisins Benfica.
Benfica fær Lenglet á frjálsri sölu en hann var ekki í myndinni hjá Diego Simeone þjálfara Atlético Madrid og vildi spænska félagið losna við hann af launaskrá.

Lenglet er 31 árs gamall og hefur meðal annars leikið fyrir Sevilla, Barcelona og Tottenham á ferli sínum sem atvinnumaður, auk þess að eiga 16 landsleiki fyrir Frakkland.

Lenglet er á alltof háum launum fyrir félagið og því samþykkti Atlético að hleypa honum burt á frjálsri sölu.

Frakkinn fer til Benfica á eins árs lánssamningi með kaupskyldu fyrir 0 evrur. Lenglet gerir tveggja ára samning við Benfica sem gildir frá sumrinu 2027 til 2029.

Clément Lenglet til Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.