Fotbolti.net
02.07.26 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Hackney til Everton (Staðfest)

Hayden Hackney skrifar undir.

Hayden Hackney skrifar undir.

Canon

Mynd: EPA

Everton hefur keypt miðjumanninn Hayden Hackney frá Middlesbrough fyrir rúmlega 16 milljónir punda.

Þessi 24 ára leikmaður átti eitt ár eftir af samningi sínum við Boro. Hann hefur verið hjá félaginu síðan hann var níu ára. Middlesbrough tapaði úrslitaleik Championship-umspilsins á síðasta tímabili og komst því ekki upp í úrvalsdeildina.

Hackney var valinn leikmaður tímabilsins í Championship-deildinni en hefur nú skrifað undir fimm ára samning við Everton

„Um leið og ég talaði við David Moyes stjóra og vissi af áhuga Everton þá var ég alltaf á leiðinni til Everton. Þetta er svo stórt félag með glænýjan leikvang og er á leið í góða átt. Ég vildi vera hluti af því," segir Hackney.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.