Hlynur Freyr á leið í Breiðablik á láni

Hefur verið fyrirliði U21.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur verið fyrirliði U21.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur Freyr Karlsson er á leið til Breiðabliks á láni frá sænska félaginu Brommapojkarna samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Hlynur, sem er 22 ára gamall varnarmaður, hefur verið í lítilli rullu hjá sænska félaginu á tímabilinu en hann hefur aðeins komið við sögu í einum leik það sem af er tímabils.
Hann á að baki 39 landsleiki fyrir yngri landsliðin, þar af 18 fyrir U21. Þá hefur hann jafnframt spilað einn A-landsleik í janúar 2024 í vináttuleik gegn Hondúras.

Hlynur er uppalinn í Breiðabliki en fór ungur að aldri út til Bologna á Ítalíu. Frá Bologna gekk hann svo til liðs við Val þar sem hann lék í eitt tímabil áður en hann fór til Haugasund.
Þaðan fór hann til Brommapojkarna og hefur hann spilað 32 leiki fyrir sænska félagið á tveimur árum. Samningur hans við Brommapojkarna rennur út í lok árs.