02.08.03 - 00:00
Esnaider til Murcia. (Staðfest)
Juan Eduardo Esnaider fyrrum leikmaður Juventus skrifaði í gær undir samning við nýliða Real Murcia eftir að hafa íhugað að hætta knattspyrnuiðkun en leikmaðurinn hefur verið einstakleg óheppinn með að finna klúbba.
Framherjinn hefur á ferlinum verið hjá eftirfarandi liðum Real Madrid, Zaragoza, Espanyol, Atlético, Juventus, River Plate og Ajaccio. Hann er því ánægður með að finna lið þar sem hann á nokkuð öruggt sæti í liðinu en yfirleitt hefur hann þurfta að hvíla botninn á tréverkinu.
Annars hefur Real Murcia styrkt sig með fjöldanum af leikmönnum þeir eru: Esnaider, Roteta (Málaga), Iban Cuadrado (Barcelona), Julio Álvarez (Real Madrid), Luis García (Real Madrid B) David Karanka (Athletic) og Javier Delgado (Cartagonova) en eftir síðasta tímabil missti liðið níu leikmenn.
Auk þessara er liðið á eftir Bonano (Barcelona), Maikel (Compostela), Núñez (Real Madrid), Albiol, Pusineri (Independiente) og Mora (Rayo), því hefur Murcia ekki sagt sitt síðasta í leikmannamálum.