Fotbolti.net
02.08.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Alajbegovic og Kolo Muani til Juventus (Staðfest)

Kolo Muani er mættur aftur til Juve

Kolo Muani er mættur aftur til Juve

Canon

Mynd: Juventus FC

Ítalska félagið Juventus hefur gengið frá kaupum á bosníska vængmanninum Kerim Alajbegovic frá Bayer Leverkusen og franska sóknarmanninum Randal Kolo Muani frá Paris Saint-Germain.
Alajbegovic er 18 ára gamall og uppalinn í Þýskalandi. Hann lék fyrst með yngri liðum Köln en fór til Bayer Leverkusen fyrir fimm árum.

Leverkusen seldi hann til RB Salzburg í fyrra en sótti hann aftur í sumar. Dvölin þar varð þó stutt því Juventus hefur nú keypt hann fyrir 33 milljónir evra. Sjö milljónir til viðbótar geta bæst við kaupverðið.

Vængmaðurinn skrifaði undir fimm ára samning við Juventus í dag.

Alajbegovic er af bosnískum ættum og hefur þegar leikið 14 A-landsleiki þrátt fyrir ungan aldur. Hann skoraði meðal annars gegn Katar á heimsmeistaramótinu í sumar.

Kolo Muani er 27 ára gamall og gengur í raðir Juventus í annað sinn.

Hann var á láni í hálft tímabil hjá liðinu á síðasta ári þar sem hann skoraði 10 mörk í 22 leikjum en Juventus gerði ekki skiptin varanleg og fór það því svo að Kolo Muani endaði um haustið hjá Tottenham þar sem hann lék í eitt tímabil áður en hann sneri aftur til PSG.

Juventus greiðir PSG 38 milljónir evra og ofan á það eru tólf milljónir í árangurstengdar greiðslur. Hann skrifaði undir fimm ára samning við 'gömlu konuna'.

Kolo Muani á 32 A-landsleiki með Frökkum og níu mörk.



Alajbegovic kemur frá Leverkusen

Alajbegovic kemur frá Leverkusen

Canon

Mynd: Juventus FC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.