Fotbolti.net
02.08.26 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson

Nígerískur landsliðsmaður genginn til liðs við Frankfurt (Staðfest)

Nígerískur landsliðsmaður genginn til liðs við Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: Eintracht Frankfurt

Eintracht Frankfurt hefur staðfest komu nígeríska miðjumannsins Raphael Onyedika frá belgísku meisturunum í Club Brugge.
Onyedika er 25 ára gamall og einn fjölmargra leikmanna sem hafa komið í gegnum akademíu danska félagsins Midtjylland.

Hann gekk til liðs við félagið átján ára gamall og fór síðar á láni til Fredericia. Þar var hann valinn í lið ársins í dönsku B-deildinni áður en hann sneri aftur til Midtjylland.

Onyedika vann sér stórt hlutverk hjá Midtjylland eftir heimkomuna en staldraði stutt við og gekk til liðs við Club Brugge árið 2022.

Á tíma hans í Belgíu varð Club Brugge tvívegis deildarmeistari auk þess að vinna bikarinn og Ofurbikarinn.

Onyedika tekur nú næsta skref á ferlinum og hefur skrifað undir fimm ára samning við Eintracht Frankfurt. Kaupverðið er talið vera um níu milljónir evra.

Hann er jafnframt fastamaður í nígeríska landsliðinu og var í hópnum sem vann silfur á Afríkumótinu árið 2024 og brons fyrr á þessu ári. Onyedika á að baki 26 landsleiki og hefur skorað í þeim þrjú mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.