Fotbolti.net
02.08.26 - 10:30
Brynjar Ingi Erluson

Salah búinn að finna sér nýtt félag - Bayern hefur áhuga á Sesko

Salah er líklega á leið til Tyrklands

Salah er líklega á leið til Tyrklands

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að slúðurpakkanum á þessum fína sunnudegi en það eru margir áhugaverðir molar að þessu sinni.
Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah (34) er nálægt því að ganga til liðs við Trabzonspor í Tyrklandi. Salah hafði áður samþykkt að fara til Besiktas eftir að hann yfirgaf Liverpool í sumar. (Foot Mercato)

Bayern München hefur áfram áhuga á slóvenska framherjanum Benjamin Sesko (23) hjá Manchester United. Koma hans gæti gefið félaginu möguleika á að færa Harry Kane (33) aftar á völlinn. (CF Bayern)

Ezri Konsa (28), varnarmaður Aston Villa og enska landsliðsins, hefur áhuga á að ganga til liðs við Arsenal. (Caught Offside)

Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City, vill fá portúgalska vængmanninn Pedro Neto (26) frá sínu gamla félagi Chelsea. Neto er verðmetinn á 70 milljónir punda. (Sun)

Chelsea og Tottenham eru komin í baráttuna við Newcastle um ítalska miðvörðinn Giorgio Scalvini (22) hjá Atalanta. Newcastle undirbýr 34 milljóna punda tilboð en leikmaðurinn er verðmetinn á 42 milljónir. (Sun)

Enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25) ætlar að þrýsta á Liverpool að selja sig til Inter. Liverpool hafnaði 21 milljón punda tilboði í síðasta mánuði en viðræðurnar halda áfram. Talið er að Inter leggi næst fram tilboð upp á 30 milljónir punda, sem er nálægt verðmati Liverpool. (Teamtalk)

Paris Saint-Germain er langt komið í viðræðum um kaup á hollenska vængmanninum Mika Godts (21) frá Ajax. Godts er verðmetinn á 52 milljónir punda en Arsenal, Liverpool, Manchester United og Tottenham hafa öll verið látin vita af áhuga PSG. (Teamtalk)

Brasilíski framherjinn Joao Pedro (24) fær nýjan og endurbættan samning hjá Chelsea þótt núverandi samningur hans gildi til ársins 2032. Hann hafnaði áhuga Barcelona og vill Chelsea verðlauna honum tryggðina. (Athletic)

Manchester United mun að öllum líkindum ekki kaupa Iliman Ndiaye (26) frá Everton í sumar. Al Hilal er líklegasti áfangastaður senegalska landsliðsmannsins og er reiðubúið að greiða 75 milljónir punda fyrir hann. (Football Insider)

Fulham hefur áhuga á írska framherjanum Troy Parrott (24) hjá AZ Alkmaar. Ajax, PSV, Real Betis og Como hafa einnig augastað á honum. (Talksport)

Franjo Ivanovic (22), framherji Benfica, er nálægt því að ganga til liðs við nýliða Hull City. Hann kemur líklega á láni en kaupákvæði verður í samningnum. (Record)
Benjamin Sesko er í sigtinu hjá Bayern

Benjamin Sesko er í sigtinu hjá Bayern

Canon

Mynd: EPA

Endurnýjar Pedro Neto kynni sín við Enzo Maresca?

Endurnýjar Pedro Neto kynni sín við Enzo Maresca?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.