
Það virtist sem eitthvað óuppgert hafi verið á milli Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur og Sveindísar Jane Jónsdóttur þegar íslenska landsliðið hóf æfingu á Laugardalsvelli í gær.
Í tvígang þurfti Sveindís að verjast Gunnhildi en þó allt í góðu og allt í gríni gert að því er virtist.
Fyrst mátti sjá Gunnhildi slá til Sveindísar og svo tók hún á henni þar sem hún lá í grasinu. Myndir af þessu fylgja fréttinni að neðan.
Leikur Íslands og Hvíta Rússlands fer fram á Laugardalsvelli klukkan 17:30 í dag og er miðasala enn í fullum gangi.
Smelltu hér til að fara í miðasöluna
Athugasemdir