Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 02. september 2022 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nýju mennirnir löglegir gegn Liverpool á morgun
Gana Gueye spilaði með Everton frá 2016-2019
Gana Gueye spilaði með Everton frá 2016-2019
Mynd: Getty Images

Liverpool borgar slagurinn milli Everton og Liverpool á Goodison Park fer fram á morgun og hefst kl 11:30.


Gengi beggja liða hefur verið vonbrigði í upphafi tímabils en Frank Lampard styrkti Everton hópinn í félagsskipta glugganum sem lauk í gær.

Neal Maupay, Idrissa Gana Gueye og James Garner gengu til liðs við félagið. Maupay er klár í slaginn eftir að hafa misst af leik gegn Leeds í vikunni. Gueye og Garner gengu til liðs við félagið í gær og verða klárir fyrir leikinn á morgun.

Abdulaye Doukoure og Dominic Calvert-Lewin eru byrjaðir að æfa eftir meiðsli en verða örugglega ekki klárir í leikinn.

Glugginn var rólegri hjá Liverpool en Darwin Nunez gekk til liðs við félagið en hann verður klár í slaginn eftir að hafa afplánað þriggja leikja bann. Arthur Melo sem gekk til liðs við félagið frá Juvenus á láni í gær er hins vegar ekki kominn með atvinnuleyfi og getur ekki spilað á morgun.

Diogo Jota gæti verið klár í slaginn á morgun eftir meiðsli. Jordan Henderson missir af leiknum eftir að hafa meiðst gegn Newcastle í vikunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner