02.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Adingra til Ajax (Staðfest) - Nelson til Feyenoord

Simon Adingra.

Mynd: Sunderland

Reiss Nelson.

Mynd: Brentford

Simon Adingra.

Mynd: Sunderland
Kantmaðurinn Simon Adingra hefur gengið í raðir Ajax á lánssamningi frá Sunderland út tímabilið.
Hollenska félagið er með klásúlu um að geta keypt þennan 24 ára landsliðsmann Fílabeinsstrandarinnar eftir tímabilið.

Adingra fór í læknisskoðun hjá Ajax í gær og Sunderland tilkynnti um skiptin í dag. Hann kom til Sunderland á síðasta ári og lék seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Mónakó.
Hollenska félagið Feyenoord er þá að fá Reiss Nelson á frjálsri sölu eftir að samningi þessa 26 ára leikmanns við Arsenal var rift nýlega.
Hann kom við sögu í 90 leikjum með aðalliði Arsenal, skoraði átta mörk og lagði upp níu. Nelson var í hópnum sem vann enska bikarinn 2020 og kom við sögu þegar Arsenal vann Samfélagsskjöldinn 2017 og 2020. Hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning árið 2016.
Hann var lánaður til Hoffenheim, Feyenoord, Fulham og Brentford frá Arsenal. Vængmaðurinn á að baki 37 leiki fyrir yngri landslið Englands.

Simon Adingra will spend the 2026-27 season on loan at AFC Ajax.
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) September 2, 2026
Wishing you well, Simon ???? pic.twitter.com/GQkVgw2lrI

Reiss Nelson.

Mynd: Brentford