Fotbolti.net
02.09.26 - 21:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Daníel Leó til AGF (Staðfest)

Daníel Leó til AGF (Staðfest)
Canon

Mynd: AGF

Daníel Leó Grétarsson er genginn til liðs við AGF frá Sönderjyske. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Eins og fram kom á Fótbolti.net fyrr í dag voru félögin í viðræðum á lokadegi gluggans í Danmörku. Sönderjyske hafnaði tilboði upp á hálfa milljón evra en Tipsbladet greindi frá því í kvöld að milljón evra tilboð hafi síðan verið samþykkt.
Daníel var lykilmaður hjá Sönderjyske en er nú mættur til ríkjandi meistarana. AGF byrjar tímabilið hins vegar brösuglega, liðið er aðeins með þrjú stig eftir sex umferðir en AGF tapaði gegn Midtjylland í kvöld.

Daníel hefur spilað 31 landsleik fyrir Ísland. Þá spilaði hann 80 leiki fyrir Sönderjyske og skoraði sex mörk. Hann gekk til liðs við danska félagið frá pólska félaginu Slask Wroc?aw árið 2023.

„Daníel hefur mikla reynslu af alþjóðlegum vettvangi með íslenska landsliðinu og hér heima í úrvalsdeildinni höfum við séð í nærmynd að hann býr yfir eiginleikum sem munu styrkja hópinn okkar og möguleika í vörninni," sagði Carsten V. Jensen, yfirmaður fótboltamála hjá AGF.

Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru á mála hjá AGF.


Heimild: AGF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.