02.09.26 - 21:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Davíð Snær færir sig um set í Noregi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snær Jóhannsson er genginn til liðs við Bryne frá Álasund á láni.
Davíð er 24 ára gamall en hann gekk til liðs við Álasund frá FH árið 2024. Hann hefur spilað 64 leiki og skorað átta mörk fyrir norska félagið.
Hann hefur verið að kljást við meiðsli að undanförnu en hann spilaði seinni hálfleikinn í 2-1 tapi liðsins gegn Viking um helgina.
Álasund spilar í efstu deild en Bryne er í 7. sæti með 29 stig eftir 20 umferðir í næst efstu deild.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma til Bryne og leggja mitt af mörkum til liðsins. Ég hlakka til að hitta leikmennina og stuðningsmennina," sagði Davíð við undirskriftina.

Heimild: Bryne