Fotbolti.net
02.09.26 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Dönsku meistararnir hækka tilboðið duglega og eru að landa Daníel

Dönsku meistararnir hækka tilboðið duglega og eru að landa Daníel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó Grétarsson er að færa sig um set í Danmörku en hann er á leið til dönsku meistaranna í AGF frá Sönderjyske. Félagaskiptaglugginn í Danmörku lokar í kvöld.

Fótbolti.net sagði frá því í dag að Sönderjyske hafi hafnað tilboði frá AGF upp á hálfa milljón evra.
Danski miðillinn Tipsbladet greinir frá því í kvöld að Sönderjyske hafi samþykkt tilboð upp á eina milljón evra og hann er á leið í læknisskoðun.

Daníel er þrítugur örvfættur miðvörður og hefur verið algjör lykilmaður í liði Sönderjyske. Hann kom til félagsins frá Slask Wroclaw sumarið 2023.

Brynjar Ingi Bjarnason og Rúnar Þór Sigurgeirsson eru á mála hjá Sönderjyske. Þeir Mikael Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru leikmenn AGF.

Daníel er lykilmaður í íslenska landsliðinu og á að baki 31 landsleik.

Heimild: Tipsbladet

Dönsku meistararnir hækka tilboðið duglega og eru að landa Daníel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.