02.09.26 - 18:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski bikarinn: Þórir Jóhann þreytti frumraun sína

Mynd: Venezia FC

Mynd: Venezia FC
Þórir Jóhann Helgason var í byrjunarliði Venezia gegn Udinese í ítalska bikarnum í kvöld. Þórir gekk til liðs við Venezia frá Lecce í sumar en hann kom ekkert við sögu í fyrstu tveimur deildarleikjum liðsins.
Venezia komst yfir snemma leiks þegar Sagrado skoraði af stuttu færi. Vakoun Issouf Bayo jafnaði metin fyrir Udinese eftir rúmlega hálftíma leik.
Hann skoraði síðan sitt annað mark og tryggði Udinese sigurinn í upphafi seinni hálfleiks. Þórir Jóhann var tekinn af velli á 72. mínútu.
Sassuolo er einnig komið áfram eftir sigur á Frosinone í vítaspyrnukeppni.
Sassuolo 1 - 1 Frosinone (4-3 í vítakeppni)
1-0 Benjamin Dominguez ('36 )
1-1 Aleksa Terzic ('45 )
Udinese 2 - 1 Venezia
0-1 Sagrado ('9 )
1-1 Vakoun Issouf Bayo ('34 )
2-1 Vakoun Issouf Bayo ('53 )