Guðni Eiríks: Við erum með langyngsta liðið í þessari Evrópukeppni

Guðni Eiríksson, annar þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, annar þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ekki besti leikur að hálfu FH í sumar,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 0-1 tap gegn Apollon Ladies frá Kýpur. Tapið kemur þó ekki að sök þar sem FH vann fyrri leik liðanna 0-2 og fer því áfram í næstu umferð.
„Kannski ekkert óeðlilegt. Hátt spennustig, hjá ungum leikmönnum FH-inga. Mjög snemma í leiknum þar sem er, að mér skilst, rangstöðumark, en gott og vel. Þá þurftum við að fara í gegnum leikinn með eins marks forystu í 80 mínútur en gerðum það vel, við fegnum ekki á okkr mörg færi í leiknum og ég er ánægður með það. Ég er ánægður með margt, hefði að sjálfsögðu viljað vinna leikinn, eða gera jafntefli en tek ekkert af FH-liðinu við erum spila á móti atvinnumannaliði, við erum áhugamannalið, og þetta voru ungir FH-ingar sem að spiluðu leikinn,“ hélt hann áfram.
Gæðin í leiknum voru ekki mikil og var mikið um feilsendingar og slíkt, aðspurður hvort það hafi verið stress í ungu liðinu vegna þess hversu stór leikurinnn var segir hann:
„Já algjörlega. Það segir sig sjálft að þegar við spilum á svona ungu liði, þá eru leikmenn að gera þetta í fyrsta sinn og eðlilega hátt spennustig en það er mikið í húfi, að komast í næstu umferð og við erum fulltrúar FH klúbbsins þannig að það er hátt spennustig, eðlilega. Við erum með langyngsta liðið í þessari Evrópukeppni, langyngsta liðið og það er gaman að segja frá því og ég hef sagt það áður, eins í leiknum úti þá voru átta leikmenn sem eru uppaldir FH-ingar sem tóku þátt í og spiluðu þann leik og í fyrra og hittiðfyrra voru þessir leikmenn að spila með ÍH í 2. deild þannig að þær eru búnar að taka stór skref á síðustu árum og þær halda áfram að þroskast og dafna og þetta fer í reynslubankann hjá þessum leikmönnum, það er klárt mál.“
Ótrúleg uppbygging hefur átt sér stað í kvennaliði FH síðustu ár sem að Guðni og Hlynur, bræðurnir og þjálfarar liðsins hafa heldur betur tekið þátt í. Hvernig horfir Guðni til baka á þessa vegferð?
„Hugurinn minn leiddi að því, rétt fyrir fyrri leikinn úti, það var stutt í leik og þá hugsaði ég, það eru svo margir ungir, uppaldir leikmenn. Maður var að þjálfa þessar stelpur í 7. flokki og 6. flokki. Þarna eru þær komnar að spila fyrir klúbbinn í Evrópu þannig að það er ótrúlega mikil vinna sem hefur átt sér stað, það er búið að halda vel á spilunum, það eru margir aðilar sem koma að þessu og það eru allir sem að stefna í sömu átt. Við erum að sýna það að það er hægt að gera góða hluti með uppbyggingu ef hún er gerð á réttan hátt, þar sem allir eru samtaka og það eru gæði í því sem er verið að leggja upp með.“
Viðtalið við Guðna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
