02.09.26 - 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Richarlison samþykkir tilboð frá Tyrklandi - Þrefaldar launin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison hefur náð samkomulagi við Trabzonspor um kaup og kjör.
Tyrkneska félagið hefur hins vegar ekki náð samkomulagi við Tottenham um kaupverð, en Richarlison er samningsbundinn enska félaginu. Tottenham hefur hafnað tveimur tilboðum og það seinna hljóðaði upp á 20 milljónir punda.
Fabrizio Romano, ítalski félagaskiptasérfræðingurinn, býst við því að Trabzonspor leggi fram nýtt tilboð fljótlega.

Romano segir að Richarlison þrefaldi sig í launum með því að fara til Tyrklands. Talið er að Richarlison sé með 90 þúsund pund í vikulaun hjá Tottenham.
Brasilíumaðurinn er í aukahlutverki hjá Tottenham og var sterklega orðaður við Everton undir lok gluggans, en hann vildi ekki fara aftur þangað. Tottenham keypti Richarlison, sem er 29 ára, af Everton árið 2022.
Mo Salah, fyrrum leikmaður Liverpool, er leikmaður Trabzonspor.