Fotbolti.net
02.09.26 - 17:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópubikarinn: FH áfram þrátt fyrir tap - Aldrei í hættu hjá Blikum

Evrópubikarinn: FH áfram þrátt fyrir tap - Aldrei í hættu hjá Blikum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH fékk Apollon frá Kýpur í heimsókn í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópubikarsins í dag. Liðin mættust í Kýpur þar sem FH vann 2-0 sigur.

Gestirnir byrjuðu betur í dag og Krystyna Freda kom Apollon yfir eftir tíu mínútna leik af miklu harðfylgi.
FH gekk illa að skapa sér almennileg færi í fyrri hálfleiknum og gestirnir voru með forystu í hálfleik en FH áfram með forystu í einvíginu.

Seinni hálfleikurinn var tíðindalítill og 1-0 tap staðreynd en það kom ekki að sök því FH vann einvígið 2-1 og er komið áfram í næstu umferð.

Breiðablik heimsótti Csikszereda frá Rúmeníu en Blikar fóru með verulega gott veganesti út eftir 8-1 sigur í Kópavogi.

Þórdís Elva Ágústsdóttir var nálægt því að koma Blikum yfir í kvöld en markvörður Csikszereda varði vel frá henni. Þórdís átti síðan sendingu á Hrafnhildi Ásu stuttu síðar en hún skaut rétt framhjá.

Blikar náðu forystunni eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik þegar Katelyn Duong skoraði eftir hornspyrnu.

Það reyndist vera sigurmarkið og Breiðablik fór örugglega áfram eftir 9-1 sigur í einvíginu. Liðið er því komið áfram í næstu umferð.

Csikszereda 0 - 1 Breiðablik
0-1 Katelyn Duong ('55 )
Lestu um leikinn

FH 0 - 1 Apollon Ladies
0-1 Krystyna Freda ('10 )
Rautt spjald: Angelos Tsolakis, Apollon Ladies ('90) Lestu um leikinn
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.