Fotbolti.net
02.09.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkasta lið 17. umferðar - Á skilið launahækkun

Lillý er að reynast Valskonum drjúg.

Lillý er að reynast Valskonum drjúg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna eru 17 umferðir búnar í Bestu deild kvenna og aðeins umferð eftir fram að skiptingu. Í 17. umferð voru mjög óvænt úrslit á Kópavogsvelli þar sem ÍBV vann sigur gegn toppliði Breiðabliks, 1-2.

Allison Grace Lowrey fór eins og svo oft áður fyrir sínu liði og var maður leiksins en hin bráðefnilega Kristín Klara Óskarsdóttir spilaði líka vel. Jón Óli Daníelsson er sterkasti þjálfari umferðarinnar.
Sterkasta lið 16. umferðar - Toppliðin töpuðu bæði
TENGT EFNI

Sterkasta lið 16. umferðar - Toppliðin töpuðu bæði



FH náði hins vegar ekki að nýta sér það að Breiðablik tapaði stigum. FH-ingar gerðu nefnilega jafntefli við Val þar sem Lilý Rut Hlynsdóttir skoraði mikilvægt mark fyrir Val í uppbótartíma annan leikinn í röð. „Þegar deildin klárast eftir úrslitakeppni þá gætu þessi fjögur stig sem hún er búin að tryggja þeim verið virkilega stór. Ef Valur heldur sér uppi, þá ætti þau að gefa henni smá launahækkun," sagði Arnar Páll Garðarsson um Lillý í Uppbótartímanum í gær.

Hjá FH voru Helena Marie Errington og Ingibjörg Magnúsdóttir sterkar og komast í sterkasta lið umferðarinnar.

Fram vann sterkan sigur á Stjörnunni eftir að hafa lent 2-0 undir. Alda Ólafsdóttir og Sara Svanhildur Jóhannsdóttir hafa verið sterkar í liði Fram í sumar og voru öflugar í þessum leik.

Víkingur hefur núna unnið tvo leiki í röð en Bergdís Sveinsdóttir og Dagný Rún Pétursdóttir spiluðu mjög vel í 3-0 sigri liðsins gegn Grindavík/Njarðvík.

Þá gerðu Þróttur og Þór/KA markalaust jafntefli. Alessandra Augur, markvörður Þórs/KA, var maður leiksins og Mist Funadóttir lék vel hjá Þrótti.
Kristín Klara er mjög efnilegur leikmaður.

Kristín Klara er mjög efnilegur leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alda Ólafsdóttir.

Alda Ólafsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bergdís Sveinsdóttir er búin að vera öflug í síðustu leikjum.

Bergdís Sveinsdóttir er búin að vera öflug í síðustu leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mist Funadóttir.

Mist Funadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.